Herdís Andrésdóttir

Herdís Andrésdóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði árið 1858. Hún átti tvíburasysturina Ólínu en þær systur voru skildar að þegar þær voru fjögurra ára gamlar, sendar í fóstur hvor á sitt heimilið. Eftir það lágu leiðir þeirra lítt saman fyrr en þær voru komnar á efri ár en þá bjuggu þær báðar í Reykjavík og hittust nær daglega og gátu þá deilt hinu sameiginlega hugðarefni sínu, skáldskapnum. Að því kom að þær gáfu saman út bókina Ljóðmæli árið 1924.

Ljóð Herdísar og þeirra systra voru ort inn í samtímann í hefðbundnu formi en bera þó sterkan persónulegan svip þeirra sjálfra, þeirra þankagangs og lífsskoðana auk þess sem þau varpa ljósi á viðhorf og aðstöðu kvenna á þessum árum.